Fréttir af okkur hér í Ungverjalandi
Tungumál - Languages
23.09.2006 14:35:51 / hugrun

Jæja og þá er það búið....

Þetta er náttúrulega leti-blogg af hæsta stigi ........ ´

fari'ð inná www.amin-hugrun.bloggar.is og vonum að það meiki það .
Það er ekki eins mikið case að setja inn myndir og svoleiðis skemmtilegt þar

adios amigos

Amin og Hugrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 10:51:06 / hugrun

madur lifandi

Jæja nú jæja ,kjellingin er komin aftur " heim" 

Þakka kærlega fyrir æðislegt sumar, ég er voðalega þakklát fyrir að hafa fengið smá tíma með nánast öllum sem að ég vildi hitta ... THANKS  :)

Kom hingað út 15.ágúst og atlaði svoleiðis að vera snemma í því og algerlega massetta próf 28.ágúst . En aldrei þessu vant  varð  HHH : Hugrún Hörn Heppna veik í flugvélinni , flensa, vírus, og massabólga innað beini útaf frekum endajaxli ..... svo að ég er á gommu af einhverjum blessuðum lyfjum.... ekki alveg með sjálfri mér.... ligg eiginlega bara í móki með Elvis, enda hann vanur að gera nokkuð annað en a'ð liggja  8)  ajjjj þessi elska, veit ekki hvað ég myndi gera án hans :) Hreinn gullmoli !!!

Vona bara að þessi herlegheit fari nú að ganga yfir sem allra fyrst , allavega áður en við giftum okkur ;)

Palli og Helena ...innilega til hamingju með litla peyjann  !!!!!!!!!!!!!

  LUV ´YA ALL

                   Hugrún og Elvis

 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 16:01:32 / hugrun

Back 2 business

Jæja skólinn byrjaður aftur alveg á fullu, reyndar löngu byrjaður :S 
En allavega þá hefur ekki verið bloggað lengi hér á bæ og tími til komin sýna smá lit .

Það sem stendur einna helst uppúr er frábær ferð sem að við Amin fórum í til Ítalíu. Við fórum að heimsækja hana Amöndu okkar í  Mílanó, þetta var svakalega skemmtilegt, fórum að versla og eigum við að ræða þessar búðir eikkað frekar .....ohhhhh minnn gvvuuuððð .... Gucci, Prada, Armani ....og ég gæti haldið töluvert lengur áfram, hef bara aldrei séð annað eins fancy thing. Tel þetta einna hættulegasta place jarðar, ég væri allavega fljót að freistast til að ræna banka til að kaupa mér föt og svo auðvitað á endanum lenda á götunni allslaus og verða að blaða sölukellingu.... tæki tops mánuð en allavega svo fórum við á djammið ... og viti menn hittum einhverja dúdda úr A.C mílan ... þó að ég hafi nú ekkert persónulega þekkt þá ...enda sucka í fótbolta ... heitir þetta ekki annars fótbolti :)

Svo er ekki annað um þessa ferð en að þetta var alveg frábær ferð og afskaplega gaman að hitta ykkur öll þarna ( fjölskylduna hans Amins ). Þakka bara kærlega fyrir frábæra helgi :)

Smá hundalífsfréttir

Elvis hefur það nú bara afbragðsgott .. var reyndar eikkað slappur um daginn ... fórum með hann til dýralæknins því að hann bara orgaði og gorgaði .. var farin að halda að hann væri með fuglaflensuna : /  ..... En svo kom annað í ljós þegar vetinn var búin að skoða hann í bak og fyrir og sagði svo : You know he is not allowed to ewt snow .....  Elvis ... hann er náttúrulega besta ruðningstækið í götunni .. hann labbar og gúffar .. það er komið þetta líka jellessí í götuna .. fólk farið að vakan á nóttunni ( 5:30) til að moka snjóinn Ó JÁ.

Ajjjjjj svo var líka litla Nóttin mín heima að eignast hvolpa fyrir sotlu .. verð eiginlega að sýna ykkur þá því að þeir eru alveg  endalaust litlir og sætir

Jæja komið nóg um mitt líf , nýtt líf og hundalíf

Langar að óska þér elsku Svandís mín .. til hamingju með að hafa komist inn í fyrstu lotu .. enn soldið eftir og það eru baráttukveðjur hér frá Lugossy .. U CAN DO IT segji nú ekki ef að þér  hefur tekist svona alloft að leika á mig ..þá geturu sko sannarlega leikið :)

Allavega sakna ykkar allra heima  obbó mikið ... og segji bara bless í bili

mmmooooohhhh...kær  kveðja

                                                   Hörn ( Amin og Elvis )



 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 22:26:14 / aminhasan

2 árs íslendingar þurrkaðir út

Jæja ég held að það sé eitthvað samsæri í gangi innan anatomiu deildarinnar í ár gegn okkur íslendingunum í ár því að það er verið að nauðga hverjum og einum íslendingi sem fer inn ósmurðan í analinn. það skiptir ekki máli hvað farið er vel undirbúið inn það virðist ekkert vera nógu gott fyrir prófessoranna í ár.
    En eins of málshátturinn fer "Allt er þegar að þrennt er" þannig að í síðasta sénsi okkar hljóta hlutirnir að fara að snúast við.
    Vildi bara skila einvherjum fréttum héðan þar sem við höfum ekkert skrifað í heila eilífð.

Kærar kveðjur Amin, Hörn og Elvis :!:8|:!:

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 16:17:36 / aminhasan

Við erum komin með nýja myndasíðu endilega skoðiði

Við vildum bara segja öllum að við værum komin með nýtt mynda albúm, til þess að geta skoðað það fariði þá inná Mynda albúmið okkar :!: :!:
Endilega látiði okkur vita hvað ykkur finnst.


P.S okkur finsnt þið heldur ekki nógu dugleg að skrifa comment hjá oss.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 13:57:43 / aminhasan

Vúhú netið loksins komið

Jæja Hrafnhildur farin og þá fara hlutirnir að gerast ..... ajjj ÞETTA VAR NÚ ÓÞARFI (sem sagt búin að horfa á sódómu allt of oft) allavega þá erum við búin að bíða eftir netinu í alltof langan tíma og það small inn bara núna í dag þannig að í tilefni dagsins atla ég að blogga. Það er frá mörgu að segja ef ég byrja að segja frá þessari viku þá er þetta búin að vera alger ammælis vika , búið að vera partý í nánast viku (bökuð kaka og fínheit )..... þetta byrjaði 1sta jan með Strúnu, stórafmæli, 25 ára . Svo kom smá gap ,enn við fundum einn kennara, Kornelíu vinkonu sem að fyllti í eyðuna og átti afmæli 2 jan . svo var það mitt afmæli 3.jan og svo Kári 4.jan . Dúndur vika ekki satt En allavega þá eins og flestir vita skrapp ég heim þanna í viku um jólin og átti góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar ....voðalega nice og náði að dj-amma eitt kvöldið og fór svo í get2gether hjá Röggu vinkonu hennar Boggu , svo var ferðinni haldið í þetta allsvakalega LÆKNAPARTÝ ég segi nú bara vægast sagt jesus minn ... ekki það að megnið af þeim sé pottþétt ágætisfólk. En hér er ein svolítið sérstök klósett saga . ég var semsagt að punta mig inná baði og heyri þarna einhverjar stöllur vera að ræða málin : Je og hann er í lögfræði ... finnst þér það ekki ömurlegt . .... Sumir voru svona í snobbaðri kantinum og restin alltof furðulegt lið ...nei nei inná milli var ágætis fólk ....einn , jafnvel tveir dúndur gaurar Hurðu ég er svo spennt að geta loksins skoðað veraldarvefinn :) hef verið sem hálfur maður í 2 mánuði eða meira . Hafiði það eins gott og mögulegt er kveðja Hugrún , Amin og Elvis byðja líka að heilsa .

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 19:53:18 / aminhasan

Við komum ekki heim þessi jól

Eins og staðan hjá okkur er í dag þá munum við ekki ná að koma heim fyrr en um lok jan þannig að við ákváðum bara að vera ekkert að spá í því að vera að fara heim og ferðast frekar eitthvað lítilsháttar hér innan "Evrópu" þar sem við vitum svo lítið um nágranna lönd okkar.

Elskum ykkur öll Amin og Hörn :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 23:59:44 / aminhasan

MANDA TALÍA

Jæja eins og kannski mörg ykkar vita þá fór ég (Amin) til Ítalíu að hitta systur mína (Amöndu) síðustu helgi. ég lagði af stað héðan í þas sem að ég hélt myndi vera löng ferð en viti menn það tók ekki nema 6 klst fyrir mig að fara úr mínu húsi og koma inn í hennar hús í Milanó sem by the way er ekkert smá flott.  Amanda legjir með annarri stelpu sem heitir Íris og kannast vist við hana Hörn mína og hennar vinkonur sérstaklega Ingibjörgu sagði hún þar sem hún útskrifaðist með henni. Allavegana nóg um þetta og nú skal ég reyna að lýsa ferðinni á sem stystan máta um leið og ég kom inn í íbúðina hjá stelpunum þá heyrði ég nokkuð sem mér er kunnugt það var opnuð rauðvínsflaska hahaha og við byrjuðum að sötra meðan að Íris hljóp út aðeins að ná í pizzur handa okkur ekkert eitthvað helvítis sull eins og hér í ungverjalandi.  Við fengum okkur að borða og spjalla þegar símin hjá amöndu byrjaði að hringja stanslaust og haldið var út á lífið langt fram á nótt og mjög mikið drukkið, þið getið giskað til um afganginn þar sem ég nenni ekki að skrifa mikið meira. 

Eftir að hafa vaknað frekar seint eftir langt kvöld héldum við út að fá okkur að borða og skoða okkur aðeins um (það meira að stelpurnar gengu um og ég á eftir eins og illa barin hundur :haha::haha: ;)  já og svona gekk ferðin meira og minna alla mína vist hjá stulkunum.  Það var svo mikið fjör að það er ólýsandi þó svo að ég hafi saknað mína heitt elskuðu Hörn og ELVIS minn þá var þetta Með bestu tímum sem ég hef haft.

THANK YOU SO MUCH 4 EVERYHTING AMANDA           LOVE YOU LOTS AMIN


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 23:01:52 / aminhasan

Komin ný slóð á síðuna okkar

Við erum sumsé komin með nýja slóð á síðuna okkar og hún er www.monsaskons.tk endilega verið dugleg að skoða og skrifa fréttir að heiman og þá lofum við að vera dugleg að skrifa

lots of love amin og hörn;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 20:43:08 / hugrun

VOFF VOFF!!!

Ég held að það sé komin tími til þess að skrifa eitthvað smá bull á þessa síðu en þar sem mjög lítið hefur gerst hingað til veit ég eiginlega ekkert hvað ég get sagt ykkur annað en að við erum komin með lítið kríli á heimilið. Ég skal gefa ykkur hint um hvað það er; það er á fjórum fótum, kramið andlit, er teiknimynda fígura í tomma og jenna og er ótrúlega sætt.  Allavegana þá Heitir littli voffin okkar ELVIS og er af tegundinni enskur bulldog.

Lots of love Hugrún og amin.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2005 21:37:10 / hugrun

Hæ Hæ

hæ hæ ég hef tekið eftir því að ég hef verið að skrifa svolítið mikið um hvað mig hefur gengið vel í prófunum upp á síðkastið (en gleymt hörninni minni) :(8| (út af þeirri ótrúlegu hamingju sem er í mér að vera loksins búin með mikið af prófunum :lol:)  að ég hef algjörlega gleymt að skrifa um ástina mína og velgengni hennar í skólanum. En ég er viss um að allir vita að hún hefur verið að standa sig eins og hetja hér og er búin að ná öllum prófunum sem hún hefur farið í og meiri að segja náði Cell biology prófinu í fyrsta séns sem að margir hafa verið að falla í einu sinni ef ekki tvisvar þannig að Já hún hefur staðið sig eins og hetja segji ég aftur.

Kær kveðja Amin og Hörn :D:!::!::!::D

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.06.2005 13:19:47 / hugrun

Ég náði !!!

Jæja það er gleði dagur hjá hjónunum í ungverjalandi við erum alltaf að taka skrefið nærri öðru ári þrátt fyrir að hafa verið löt á síðustu önn þá erum við búin að vera mjög dugleg og samviskusöm núna á þessari önn og our HARD work is starting to pay offf hehehe. Ég var að fá niðurstöður mínar úr Biophysics prófinu mínu og ég náði. Og Hugrún náði Cell bio prófinu sínu í síðustu viku og það í fyrstu tilraun sem að er ótrúlega gott sérstaklega þar sem marigir eru að ná því í annarri eða þriðju tilraun.  Allavegana þá er ekkert annað að frétta af okkur skötuhjúgunum hér annað en það að það eru bara 9 dagar í að við komum heim og við getum vart beðið. Við söknum ykkar allra heima alltof mikið og getum ekki beðið eftir að koma heim.
Kær kveðja Amin
8)8)8)8)8)8)8)8)8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 20:05:10 / hugrun

JIBBÍ JIBBÍI JEY

Jæja ég held að það sé komin tími til þess að ég (amin) skrifi eitthvað núna sérstaklega þar sem ég hef tíma núna því ég náði ANATOMY lokaprófinu mínu og er í skýjunum.  Allavega þá varð ég að koma því á framfæri að ég er búin með anatomy fyrir þetta á og bara 4 próf eftir.  Allavega þá er allt gott að frétta af okkur en því miður höfum við eingar fréttir aðrar en þær að við erum búin að sitja inni daginn út og daginn inn í marga marga mánuði (allavegana líður okkur þanni :lol:) allavegana þá bið ég að heilsa og vildi bara láta fólk vita að við komum heim aftur á klakan 2 júlí.

Kveðja AMIN:D:D:D:D:D:D

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 20:43:02 / hugrun

Jæja

Hæ hæ ég veit að það er orðið of langt síðan ég skrifaði síðast og eins of ég sagði systur minni núna rétt áðan þá hefur maður varla sekúndu til þess að fara á klósettið það er allt brjálað að gera, alltaf jafn gaman í læknisfræðinni.  Allavegana þá ákvað ég að eyða þessum mikilvægu sekúndum sem ég hef í að skrifa á bloggið, svo að ég gæti sagt ykkur hvað er í gangi hér eins og þið vitið þá voru fréttir um okkur (eða skólan okkar) gaman gaman en allavegana fyrir utan það þá er allt á fullu hjá okkur og nóg að gera, það eru ekki nema tvær vikur eftir af skólanum og þá tekur við KAFFI,REDBULL,SÚKKULAÐI og BÆKUR BÆKUR BÆKUR næsta mánuðinn þannig að það verður enn meira að gera hjá okkur.  En við skulum reyna okkar besta að halda sambandi við ykkur.  Ég í alvörunni veit ekki hvað ég get skrifað meira annað en að ég veit að Hörn saknar ykkar allra geggjað mikið, með mig veit ég ekki en eitt veit ég þó að ég get ekki beðið eftir að koma heim (það er að segja ef ég lifi próftörnina okkar af).

Ástar og saknaðar hveðjur HUGRÚN HÖRN og AMIN:!::!::!::!:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2